Prófíll

  • Nafn: Helga Sjöfn Hrólfsdóttir
  • Staður: Fellabær
  • Atvinna: Fiðlukennari
  • Hjúskaparstaða: laus
  • Um mig: Ég elska þig :)

Auglýsing

Nýtt blogg fyrir Jöru:*

20. febrúar 2008 klukkan 23:48
Ég er rooosaleg leim bloggari! Ég var eiginlega komin á það stig að hætta bara með þessa síðu þar sem ég nenni ekki að gera neitt hérna :$
En hvað gerir maður ekki fyrir systur sína? :)

Það er samt ekkert að frétta af mér eiginlega. Nema bara að það er búið að vera brjálað að gera í skólanum í síðustu viku, þessi vika er öllu skárri því það eru opnir dagar í gangi:D Seinasti dagurinn því miiiður á morgun, og þá fer ég að horfa á teiknimyndir hjá Ronaldi :D ég ætlaði líka að fara í nudd á morgun en Vala kemst ekki með mér til að vera nuddfélagi svo ég fer bara snemma heim á morgun eftir teiknimyndirnar.
En það sem ég valdi mér að gera í gær var alveg fullt sko! Fór á fyrirlestur kl 11 í gær um stuttmyndagerð (eða hugmyndir að stuttmyndagerð og hvernig ætti að búa til stillur og e-ð svoleiðis) og ég skráði mig í að gera sýningu á cafe Valný! Er frekar spennt fyrir því:D Svo kl 13 fór ég í námsver með Völu og ætluðum að vera rosa duglegar að læra, en það eina sem við náðum að gera var að gera eitt uppeldisfræði verkefni og hjálpa Lindu og Nínu með Morfís ræðurnar þeirra, sem voru snilld btw:D haha! Svo kl 16 var badminton ooog það var svo gaman! Ég og Linda á móti Heiðdísi og Völu. Við spiluðum badminton sitjandi og hoppandi á öðrum fæti og guð má vita hvað! Ég hef aldrei skemmt mér jafn vel í badminton :)

Svo var það Morfís keppnin. Nemendur vs Kennarar og umræðuefnið var "eru austfirsk ungmenni á réttri leið í lífinu?" Og nemendur voru á móti og kennarar með því. Ræðurnar þeirra Lindu, Ástu og Haffa voru snilld:D ekkert smá mikið hlegið þarna, kennararnir voru líka ágætir... enda unnu þeir, tíkurnar ;) hehe.
Svo í dag fór ég á austfirsku ólympíuleikana á Nesk.. ME var í 2. sæti... við höfðum orðið í 1. sæti ef helvítis blakið hefði ekki verið með í þessu! Ég er ekki að segja að við sökkum e-ð mikið í blaki... nei heldur mega VA-ingar eiga það að þau eru viðbjóðslega góð í blaki, enda æfa þau það stíft!!! Annað en ME-ingar gera... Næsta ár verður ekkert helvítis blak:D haha.
Á morgun verður svo bara horft á teiknimyndir kl 10 á morgun og svo sækja Jón og svo fara í tónlistartíma og fara að sofa kl 8!!

Ég er búin að vera ein heima í 11 daga núna! Eða reyndar ekki alveg ein heldur er ég búin að vera að passa Jón Einar... sem er búið að vera soooldið þreytandi, það er rosalega mikið verk að sjá um 6 ára krakka, heimilisstörfin einsog þau leggja sig, helvítis námið og tónlistartímana og fleira sem fylgir því að eiga fullt af vinum og vera einn heima;)... mamma og pabbi koma á morgun frá Las Palmas og ég á pottþétt eftir að greeenja af létti að þurfa ekki að elda eða hugsa um allt húsið og Jón eein !
Samt er nú alveg búið að vera smá kammó að vera ein í húsinu án þeirra gömlu... en það var eiginlega bara gaman fyrstu 4-5 dagana ;)

Jæjaa Jara mín! Nú geturu skemmt þér að kommenta þetta fallega blogg þar sem ég efast um að einhver annar muni gera það ;) Sakna þín meeest!:*

the skóli begins

09. janúar 2008 klukkan 18:49

Eitt stykki blogg í tilefni dagsins jáw:) það er 9. janúar 2008! Gleðilegt nýtt ár fólk og takk fyrir 2007:) Ooog mamma mín átti afmæli í gær:) Kjéllan orðin 39 ára og fékk eitt stykki þurrkara í afmælisgjöf frá familíunni, ég á reyndar eftir að gefa henni gjöfina frá mér... Óákveðinn een hún kemur fljótlegaSaklaus
Svoo fór ég í skólann á mánudaginn:) ég verð bara að segja að ég er alveg sátt með stundarskrána mína. Þarf að mæta þrisvar í viku kl 10 og tvisvar kl 9 og er búin milli 3 og 4 alla daga nema 2 á föstudögum:) Ég var fyrst reyndar ekki sátt með stundarsrkána að því leiti að ég var ekki látin í neina stærðfræði... en það er ekki hægt að laga það nema ég hætti í þýsku og þetta eru bæði skylduáfangar svoo það er ekkert hægt að gera í því Glottandi Svo er ég í p í ensku... er soldið kvíðin fyrir því, því ég hef aldrei verið í p í neinu áður.... EN WOTEVER... ég er í 19 einingum og er í alveg þokkalega skemmtilegum áföngum:) Ég er sátt.

Annars er EKKERT að frétta af mér... ég er bara hérna og læt mér leiðast og vera ennþá slöpp frá því á jólunum. Ég er að meeina það, ég er ógeðslega gölluð vara.. er alltaf eitthvað veik.
 Mig langar sjúkt mikið suður með Svandísi næstu helgi!! Hver vill lána mér moneeyy?? Saklaus 

En íslenska kallar (Y) bææjjj


annar í jólum blogg

26. desember 2007 klukkan 16:16
Það er alveg greinilegt að það er rosalegur áhugi á að fólk commenti á þessa síðu ha? Og það skiptir engu máli hvort það séu einhver blogg til að commenta á, það er seinni tíma vandamál. En hér kemur eitt stutt :)

Ég náði öllum prófunum;) sátt með það að sjálfsögðu. Oog ég er bara búin að vera í fríi síðan 14. des :) prófin voru búin 8. des og tónlistarskólinn hætti 14. og ég er bara búin að hafa það mjöög náðugt síðan þá :)

Ég fékk helling skemmtilegt í jólagjöf:D fékk föt, pening, skartgripi, ilmvötn, body lotion, 6000 kr bensín inneign hjá orkunni:D, snyrtidót, hálsklút, staup, kerti og geeeðveikt sléttujárn og eitthvað fleira:) ég er rosa sátt með mitt:)
Bróðir minn fékk sko KAST á aðfangadag! Þegar klukkan var orðin 2 þá vildi hann endilega að við færum að borða kvöldmatinn og svo þegar við loksins borðuðum kvöldmatinn kl 6 einsog vanalega að þá hafði hann enga lyst. Hann rétt svo át nokkra bita af kjöti, spenningurinn í að fara að opna pakkana var svo mikill. Svo byrjuðum við að opna pakkana og hann vildi bara drífa þetta af, vildi fá næsta og næsta og næsta pakka. En við auðvitað hægðum alltaf á þessu og fengum okkur ís þegar við vorum hálfnuð að opna pakkana og svona. Jón Einar var að verða brjááálaður:D haha. Svo þegar hann var búinn að opna alla pakkana að þá hafði hann allt í einu matarlyst;)

Svo sat ég í rúma klukkustund að búa til risa bensínstöð úr legókubbunum hans Jóns... hehe. ég tók myndir af bensínstöðinni og ég skelli þeim hérna inn við fyrsta tækifæri. Ég er rosa stolt :) reyndar er Jón búinn að eyðileggja hana núna... eeen ég á allavega myndirnar:D

Annar í jólum ball í kvöld?? ég voona það. Er reyndar lasin núna með rúman 39 stiga hita og vesen... en mín skoðun er að smá frískt loft á einhverju balli lagi allt ;)

ætla ekki að blogga meira, ég bíst ekki við að fá nein comment hvort eð er :C
 
.........druslur

Prófin búúin!

11. desember 2007 klukkan 16:29

Ég er loksins búin í prófum (kláraði þau reyndar 8. des). Var í 7 prófum og það gekk bara sæmilega held ég. Ég er meirað segja búin að fá einkun úr þrem þeirra. Fékk 8 í íþróttum, 6 í náttúrufræði 123 og 7 í þýsku :) Er búin að ná öllu so far. Er samt mjög forvitin að vita hvað ég fæ úr stærðfræði og íslensku. Hef ekki miklar áhyggjur af ensku og dönsku.

Svoo hætti ég að kenna á föstudaginn. Sjitt hvað ég kvíði fyrir! Það eru jólatónleikar á föstudaginn og ég er ýkt kvíðin fyrir hönd stelpnanna sem ég er að kenna! ég er á nálum án djóks! Það endar með að ég fer að skjálfa og froðufella, þær eru ekki nógu vel undirbúnar... hmm.. hverjum ætli það sé að kenna?! :( Ég er örugglega einn ömurlegasti kennari í heeeimi!

Een ég bíð bara eftir að föstudeginum ljúki (ÞAÐ verður spennufall dauðans) og þá ætla ég sko ekki að gera NEITT allt jólafríið! Ég ætla ekki að spila í neinni messu og ég ætla ekki að spila neinsstaðar úti með Charles eða neeeiiitt. Bara vera heima með fjölskyldunni og taka til og liggja í leti! Er búin að vera að bíða eftir því of lengi!

Hvernig væri að taka föstudaginn með trompi bara ?

-Helga Sjöfn.

Sjúkrahús

25. nóvember 2007 klukkan 18:33

Manneskjan sem ég dái hvað mest hefur legið á sjúkrahúsi í mjöög langan tíma núna, þar sem ég hef ekki mikið tímavit þá man ég ekki alveg hve lengi, en það er meira en mánuður liðinn, og hún er mjög veik. Ég las blogg hjá frænku minni sem hefur sama álit á þessari manneskju og ég. Við elskum hana mjög mikið báðar tvær og lítum mikið upp til hennar. Hún ól upp 7 börn, missti manninn sinn útaf krabbameini 1990, hún er 86 ára núna og hefur fullt vit í kollinum, býr á þriðju hæð í blokk og gengur allt og hefur passað barnabörnin sem og barnabarnabörnin og er með eindæmum ein duglegasta manneskja sem ég hef nokkurn tíman hitt! Hún er án efa hetjan mín.

En þessi frænka mín bloggaði um sjúkrahúsavist sjúklinga og hvernig þeir væru meðhöndlaðir. Þeir yngri fá yfirleitt meiri aðstoð og útskýringar heldur en þeir sem eldri eru og eiga í sumum tilfellum ekki mikið eftir. Mér finnst sem þessi mismunur ætti ekki að eiga sér stað, og allra síst á sjúkrahúsum. Ég get vel trúað þessu sem hún sagði því þegar ég lá á sjúkrahúsi í viku þá fékk ég útskýringar nánast í æð. Allir voru til í að útskýra fyrir mér hvað hitt og þetta væri og hvað væri að gerast. Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að liggja á sjúkrahúsi og vita ekki hvað mun gerast næsta dag. En eins og frænka mín sagði að þá er þetta líka allt spurning um hvaða hjúkka eða læknir eru að störfum hverju sinni. Hjúkrunarfólk hreinlega VERÐUR að kunna að koma fram við sjúklinga sem og gesti sjúklingsins.

Svo er líka eitt í viðbót sem ég vil deila hér og það er hvað fólk getur verið ómerkilegt, óheiðarlegt og ógeðslegt!!
 Fyrir ekki svo löngu síðan fór ég í heimsókn til þessarar konu sem þá lá á sjúkrahúsinu á Akureyri, og var á batavegi. Hún sagði mér frá því þegar ég og foreldrar mínir komu seinast í heimsókn og þá lá hún á gjörgæslu og að rétt eftir að við vorum farin að þá hafi komið þessi "yndislega" kona og bauðst til að fara með veskið hennar í læstan skáp niður í afgreiðslu, bara til að hafa það ekki svona á glámbekk svo enginn myndi taka það. Þessi vesalings kona, fárveik og uppdópuð af lyfjum vildi það endilega og þakkaði henni mikið fyrir að vilja fara með veskið í læstan skáp. Síðan þá hefur veskið ekki fundist. Þetta hefur greinilega ekki verið starfsmaður á ferð, og mér finnst hræðilegt hvað fólk hefur lítið hjarta, að stela af gamalli konu sem liggur á gjörgæslu!! Ég á bara ekki til orð.

En ég ætla bara að fara að ljúka þessu bloggi mínu og vonast til hins besta þótt útlitið sé ekki gott.
Elska þig amma mín:* :'/

Þessi augu !

24. nóvember 2007 klukkan 11:25


Þetta er hann Heiðar Árni, systursonur minn! Hann er með STÓR og BLÁ augu!


.Vildi bara deila því með ykkur.

Ps. 1. des í gær var snilld:D borðhaldið gott, ágætur matur, snilldar skemmtiatriði, kosningin skemmtileg, ballið mjög gott, dansaði mikið, týndi eyrnalokk en fann hann aftur sem var æðislegt, gleymdi reyndar myndavél sem var ekki sniðugt, ég var edrú þótt þið haldið annað krakkar:D haha

Annars, allt gott að frétta af mér. Tónleikar í egs kirkju í dag kl 18:00

Áfengisneysla ungs fólk?

28. október 2007 klukkan 17:50

Mér finnst samfélagið vera orðið heldur strangt núna! Þessi pirringur minn byrjaði á óvissuballinu núna fyrir einhverjum vikum þegar sýslumaður vildi ekki leyfa ME ball nema að lögregla væri á staðnum (eða ég skildi það þannig). Og auðvitað var lögreglan á staðnum og tók allt áfengi af fólki sem var undir tvítugt! Og það voru þó nokkrir sem misstu eitthvað af áfengi sínu og nokkrir voru látnir á einhvern lista og það var hringt í foreldra. Hversu vangefið er það? Þetta er menntaskólaball og það er verið að hringja heim til menntskælinga sem voru að drekka! Við hverju bíst fólk?? Auðvitað drekka menntskælingar í dag einsog fyrir 15-20 árum þegar þessar fkn löggur voru í menntaskóla! Það mun ekkert breytast, það er alveg kristaltært.

Svo var annað 16 ára ball á Neskaupsstað núna um helgina með Páli Óskari, og löggan stóð fyrir utan rúturnar með menntskælingum í og skoðuðu í allar töskur og tóku allt áfengi! Auðvitað varð fólk virkilega pirrað yfir þessu, en aðrir voru heppnir og náðu að smygla einhverju áfengi út. Og oná þetta þá mátti fólk ekki fara útaf ballinu, annars komst það ekki aftur inn. Og þá auðvitað fór fólk að reykja inni;) what goes around, comes around!
 Þessar reglur eru bara engan veginn að gera sig hjá þessu blessaða fólki sem semur þær! Ef þetta á að vera svona mikið vesen að fara á ball þá hættir fólk á endanum að nenna að fara á ball.. og þá verður meira um heimapartý, sem er miklu verra því þar er yfirleitt enginn fullorðinn að fylgjast með!
Ég veit alveg að reglurnar eru þannig að fólk undir 20 má ekki kaupa né neyta áfengis, en þetta er bara alltof hár aldur og er bara fáránlegt! 18 ára einstaklingar á þessum böllum fengu ekki að hafa áfengið sitt í friði! Samt mega þessir aðilar giftast, fara í framboð, flytja að heiman og sjá um sín peningamál alveg útaf fyrir sig, en er samt ekki nógu þroskað til að vera með áfengi. Þetta er bara alveg útí hött!!
Mér finnst frekar einsog löggan eða einhverjir fullorðnir ættu að vera á böllum og taka áfengið af fólki sem greinilega er búið að fá nóg því það verða aldrei nein edrú menntaskólaböll! Það bara mun aldrei gerast!

Er einhver sammála mér?

ps: Ef þetta er ekki sætasti bróðir í heimi þá veit ég ekki hvaað? :D

aaa kannski ég byrji aðeins aftur?

16. október 2007 klukkan 23:36
Æj ég ætla að gera tilraun nr 2 til að halda þessari síðu uppi:D Koma með einhver skemmtileg málefni til að spjalla umm jáá? hehe sjáum til. Ætla kannski að segja frá tilveru minni í þessari pásu sem ég er búin að vera í ;D
  • Skóóliiiii, meiri skóli, mikið að læra
  • Mér bauðst vinna sem fiðlukennari:D ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um og tók við starfinu og er núna officially orðin fiðlukennari :)
  • Botnlanginn sprakk svo ég missti af rúmlega  hálfum mánuði í skóla... helv læknar ekki að fatta neitt.
  • Á þessum hálfum mánuði á sjúkrahúsi hitti ég æðislega gamla konu með ms sjúkdóm og er sirka 70 ára, sem FÍLAR ROTTWEILER!! :D Hún er bara hrein snilld þessi kona!
  • Þegar ég komst loksins heim af sjúkrahúsinu þá fengu kennararnir flippkast og gáfu mér þúsund próf og milljón verkefni!! :C
  • Ég hélt á snák um daginn!!! :| Án djóks.. alvöru snák sem er 150 cm á lengd... helvítis ógeð.. samt töff að geta sagt frá þessu.. en þetta geri ég ekki aftur;/ jakk (Maís-snákur held ég að þetta kallist... man samt ekki alveg)
  • Fór á óvissuball seinustu helgi:) Endaði ekkert alltof vel þar sem það er ekki liðinn mánuður síðan ég lá á skurðborðinu.
  • ég gerði mér ekki grein fyrir því hvað ég þoldi lítið... hehe:D
  • Allir að hakka útí skógi og móa og fjalli og rútu!! Allamalla!
  • Djúsí pési on the way bíst ég við;)
  • IMBA átti 17 ára afmæli í gær og fékk bílprófið:D Hún er æði og besti driver í heimi og ég elska hana mest í heiminum:*
  • Búið í bili.. kemur skemmtilegra blogg næst!
  •  ÉG LOFA !
  • Eyrún og Fanney: Takk fyrir að nudda mig áðan:)

Tak for mig!

"fljúgum ááfraaam, útí geimiinn!!"
ps. www.myspace.com/helgasjofn nýjar myndir :)

Nýtt blogg

01. september 2007 klukkan 12:51
Ég er hætt, nennessuekki

..

Annað blogg :D

11. ágúst 2007 klukkan 12:04
Vá hvað ég er dugleg, annað blogg og það er ekki liðinn mánuður síðan ég bloggaði seinast ;)

Ég er officially hætt að vinna hjá Þ.S verktökum:D svo hættu að kalla mig trukkalessu ;)

En seinasta helgi var tææær snilld! Ég fór á eina með öllu á Akureyri með Lindu og Benný :) lögðum af stað á laugardeginum og fundum gististaðina okkar 3 (ætluðum allar að gista á mismunandi stöðum, haha) een svo urðu þeir tveir þar sem ég endaði með Lindu hjá frænku hennar.
Á laugardagskvöldinu var partý hjá Sillu (frænku Lindu) og það var allt fullt af Vopnfirðingum og fleira fólki sem ég þekkti ekki neitt :) Þetta partý var snilld!! Ekkert smá gaman þarna, sumir drukku reyndar aaaðeins of mikið og dóu milli 11 og 12 ;)
Síðan lá leiðin niðrí bæ, eða þ.e.a.s fyrst í KA heimilið til Paul Oscar (L) Við vorum reyndar ekkert rosa lengi þar og fórum svo aðeins niðrí bæ og ég hitt þar Nonna og eitthvað lið, en við vorum ekki lengi þar heldur því Linda var orðin sybbin grey stelpan og við fórum heim um 3 eða eitthvað.
Sunnudagur: Við vöknuðum klukkan 8 um morguninn þar sem einn strákurinn (Símon bróðir Bjössa Vopn) var byrjaður að drekka aftur þar sem frá var horfið klukkan 11 kvöldið áður, áður en hann dó ;) Ég var að drepast úr kulda og hann var svo næs að bjóða mér koddann sinn :'D ég hef aldrei hlegið svona mikið kl 8 á morgnana! Við komumst líka að því að kúrekar geta ekki mjólkað og fleira og fleira!! Þvílíkt bull í gangi þarna!
Sáum svo flugeldasýninguna um kvöldið sem var miikið flottari en um áramótin hérna á egs!! Seinasti flugeldurinn var nettastur, (þessi sem sprakk á jörðinni hehe) En svo var bara farið niðrí bæ og drukkið og hangið með Nonna, Sidda og.. Edda? minnir mig og svo hitti ég líka Eyrúni, Sonju, Huldu og Heklu.. og fullt af fleira fólki frá Egs ! En við fórum líka snemma heim það kvöldið (eða um hálf fjögur - fjögur)

Smá slúður:
* Jón G kýldi Arnar Jóel :)
* Einhverjir Akureyringar (strákar) kölluðu Huldu og Heklu sveitalubba sem lyktuðu og það endaði með því að Akureyringarnir voru lúbarðir af þessum litlu hnátum :D haha!
* umm.. já :I hef ekki mikið meira! :S vandræðaleegt

ok bæ :I

Könnun

Hvaða ilmvatn er best?!