Prófíll

  • Nafn: Helga Sjöfn Hrólfsdóttir
  • Staður: Fellabær
  • Atvinna: Fiðlukennari
  • Hjúskaparstaða: laus
  • Um mig: Ég elska þig :)

Auglýsing

Annað blogg :D

11. ágúst 2007 klukkan 12:04
Vá hvað ég er dugleg, annað blogg og það er ekki liðinn mánuður síðan ég bloggaði seinast ;)

Ég er officially hætt að vinna hjá Þ.S verktökum:D svo hættu að kalla mig trukkalessu ;)

En seinasta helgi var tææær snilld! Ég fór á eina með öllu á Akureyri með Lindu og Benný :) lögðum af stað á laugardeginum og fundum gististaðina okkar 3 (ætluðum allar að gista á mismunandi stöðum, haha) een svo urðu þeir tveir þar sem ég endaði með Lindu hjá frænku hennar.
Á laugardagskvöldinu var partý hjá Sillu (frænku Lindu) og það var allt fullt af Vopnfirðingum og fleira fólki sem ég þekkti ekki neitt :) Þetta partý var snilld!! Ekkert smá gaman þarna, sumir drukku reyndar aaaðeins of mikið og dóu milli 11 og 12 ;)
Síðan lá leiðin niðrí bæ, eða þ.e.a.s fyrst í KA heimilið til Paul Oscar (L) Við vorum reyndar ekkert rosa lengi þar og fórum svo aðeins niðrí bæ og ég hitt þar Nonna og eitthvað lið, en við vorum ekki lengi þar heldur því Linda var orðin sybbin grey stelpan og við fórum heim um 3 eða eitthvað.
Sunnudagur: Við vöknuðum klukkan 8 um morguninn þar sem einn strákurinn (Símon bróðir Bjössa Vopn) var byrjaður að drekka aftur þar sem frá var horfið klukkan 11 kvöldið áður, áður en hann dó ;) Ég var að drepast úr kulda og hann var svo næs að bjóða mér koddann sinn :'D ég hef aldrei hlegið svona mikið kl 8 á morgnana! Við komumst líka að því að kúrekar geta ekki mjólkað og fleira og fleira!! Þvílíkt bull í gangi þarna!
Sáum svo flugeldasýninguna um kvöldið sem var miikið flottari en um áramótin hérna á egs!! Seinasti flugeldurinn var nettastur, (þessi sem sprakk á jörðinni hehe) En svo var bara farið niðrí bæ og drukkið og hangið með Nonna, Sidda og.. Edda? minnir mig og svo hitti ég líka Eyrúni, Sonju, Huldu og Heklu.. og fullt af fleira fólki frá Egs ! En við fórum líka snemma heim það kvöldið (eða um hálf fjögur - fjögur)

Smá slúður:
* Jón G kýldi Arnar Jóel :)
* Einhverjir Akureyringar (strákar) kölluðu Huldu og Heklu sveitalubba sem lyktuðu og það endaði með því að Akureyringarnir voru lúbarðir af þessum litlu hnátum :D haha!
* umm.. já :I hef ekki mikið meira! :S vandræðaleegt

ok bæ :I
 
Vala Rut...
Jahá.. skemmtilegt blogg alveg hreint. Það verður nú heldur betur djammað í okkar road trippi :) og svo verður nú voða næs að fara að hitta ykkur oftar þegar skólinn byrjar, ég sakna egs - samt eiginlega miklu meira bara fellabæjar :) fellabær rules ;)
En allavega, hlakka til að ferðast með þér sæta mín :**
#1
11. ágúst 2007 klukkan 16:17
Guðbjörg Aðalsteinsdóttirgóð vala ;) ;* en já flott blogg helga mín,, þú ert mjög aktífur bloggari :'D
#2
11. ágúst 2007 klukkan 17:41
 
Eyrún
HELGA!!!!!! nenniru að bloggaaaa...buhuh
#3
26. ágúst 2007 klukkan 15:18

Skrifa athugasemd

Könnun

Hvaða ilmvatn er best?!