Áfengisneysla ungs fólk?
Mér finnst samfélagið vera orðið heldur strangt núna! Þessi pirringur minn byrjaði á óvissuballinu núna fyrir einhverjum vikum þegar sýslumaður vildi ekki leyfa ME ball nema að lögregla væri á staðnum (eða ég skildi það þannig). Og auðvitað var lögreglan á staðnum og tók allt áfengi af fólki sem var undir tvítugt! Og það voru þó nokkrir sem misstu eitthvað af áfengi sínu og nokkrir voru látnir á einhvern lista og það var hringt í foreldra. Hversu vangefið er það? Þetta er menntaskólaball og það er verið að hringja heim til menntskælinga sem voru að drekka! Við hverju bíst fólk?? Auðvitað drekka menntskælingar í dag einsog fyrir 15-20 árum þegar þessar fkn löggur voru í menntaskóla! Það mun ekkert breytast, það er alveg kristaltært.
Svo var annað 16 ára ball á Neskaupsstað núna um helgina með Páli Óskari, og löggan stóð fyrir utan rúturnar með menntskælingum í og skoðuðu í allar töskur og tóku allt áfengi! Auðvitað varð fólk virkilega pirrað yfir þessu, en aðrir voru heppnir og náðu að smygla einhverju áfengi út. Og oná þetta þá mátti fólk ekki fara útaf ballinu, annars komst það ekki aftur inn. Og þá auðvitað fór fólk að reykja inni;) what goes around, comes around!
Þessar reglur eru bara engan veginn að gera sig hjá þessu blessaða fólki sem semur þær! Ef þetta á að vera svona mikið vesen að fara á ball þá hættir fólk á endanum að nenna að fara á ball.. og þá verður meira um heimapartý, sem er miklu verra því þar er yfirleitt enginn fullorðinn að fylgjast með!
Ég veit alveg að reglurnar eru þannig að fólk undir 20 má ekki kaupa né neyta áfengis, en þetta er bara alltof hár aldur og er bara fáránlegt! 18 ára einstaklingar á þessum böllum fengu ekki að hafa áfengið sitt í friði! Samt mega þessir aðilar giftast, fara í framboð, flytja að heiman og sjá um sín peningamál alveg útaf fyrir sig, en er samt ekki nógu þroskað til að vera með áfengi. Þetta er bara alveg útí hött!!
Mér finnst frekar einsog löggan eða einhverjir fullorðnir ættu að vera á böllum og taka áfengið af fólki sem greinilega er búið að fá nóg því það verða aldrei nein edrú menntaskólaböll! Það bara mun aldrei gerast!
Er einhver sammála mér?
ps: Ef þetta er ekki sætasti bróðir í heimi þá veit ég ekki hvaað? :D
Mér finnst að þetta eigi allt að vera 18 og líka bílprófið samt... ekkert bull með það.. fáránlegt!
finnst bara að löggan eigi að sjá um krakka sem eru undir 18 ára, þá er ég að meina að taka þá sem eru búnir að drekka aaaaaallt of mikið!! ..
þetta er bara rugl og vitleysa!
Ég var samt svo sniðug að þegar löggan fór e-ð að leita á mér og reif jakkann minn e-ð frá mér, öskraði ég bara og hljóp í burtu ; OJJ PERRI!!!! .. og þeir létu mig alveg í friði með mitt áfengi! :D .. Mjög sátt með það!
Jájájá allavega málið er ; löggimann er fáviti og þetta er rugl! auðvitað drekkur fólk í menntaskóla hálfvitar!!!!!!!
.. uu ja verðum svo að fara að hittast Helga mín :* bæ.
en tópasinn hennar nönnu reddaði mér aaalveg ;P
þetta er svo fáránlegt sko!! ætti frekar að einbeita sér að fólki sem er búið að fá sér aðeins of mikið ..
En ég er bara að segja mína skoðun, það mega allir vera ósammála mér. Held bara að sumir fatti mig ekki alveg...
En fínt blogg, gott að fá svona mikla hugvekju hingað... :P
