Prófíll

  • Nafn: Helga Sjöfn Hrólfsdóttir
  • Staður: Fellabær
  • Atvinna: Fiðlukennari
  • Hjúskaparstaða: laus
  • Um mig: Ég elska þig :)

Auglýsing

Sjúkrahús

25. nóvember 2007 klukkan 18:33

Manneskjan sem ég dái hvað mest hefur legið á sjúkrahúsi í mjöög langan tíma núna, þar sem ég hef ekki mikið tímavit þá man ég ekki alveg hve lengi, en það er meira en mánuður liðinn, og hún er mjög veik. Ég las blogg hjá frænku minni sem hefur sama álit á þessari manneskju og ég. Við elskum hana mjög mikið báðar tvær og lítum mikið upp til hennar. Hún ól upp 7 börn, missti manninn sinn útaf krabbameini 1990, hún er 86 ára núna og hefur fullt vit í kollinum, býr á þriðju hæð í blokk og gengur allt og hefur passað barnabörnin sem og barnabarnabörnin og er með eindæmum ein duglegasta manneskja sem ég hef nokkurn tíman hitt! Hún er án efa hetjan mín.

En þessi frænka mín bloggaði um sjúkrahúsavist sjúklinga og hvernig þeir væru meðhöndlaðir. Þeir yngri fá yfirleitt meiri aðstoð og útskýringar heldur en þeir sem eldri eru og eiga í sumum tilfellum ekki mikið eftir. Mér finnst sem þessi mismunur ætti ekki að eiga sér stað, og allra síst á sjúkrahúsum. Ég get vel trúað þessu sem hún sagði því þegar ég lá á sjúkrahúsi í viku þá fékk ég útskýringar nánast í æð. Allir voru til í að útskýra fyrir mér hvað hitt og þetta væri og hvað væri að gerast. Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að liggja á sjúkrahúsi og vita ekki hvað mun gerast næsta dag. En eins og frænka mín sagði að þá er þetta líka allt spurning um hvaða hjúkka eða læknir eru að störfum hverju sinni. Hjúkrunarfólk hreinlega VERÐUR að kunna að koma fram við sjúklinga sem og gesti sjúklingsins.

Svo er líka eitt í viðbót sem ég vil deila hér og það er hvað fólk getur verið ómerkilegt, óheiðarlegt og ógeðslegt!!
 Fyrir ekki svo löngu síðan fór ég í heimsókn til þessarar konu sem þá lá á sjúkrahúsinu á Akureyri, og var á batavegi. Hún sagði mér frá því þegar ég og foreldrar mínir komu seinast í heimsókn og þá lá hún á gjörgæslu og að rétt eftir að við vorum farin að þá hafi komið þessi "yndislega" kona og bauðst til að fara með veskið hennar í læstan skáp niður í afgreiðslu, bara til að hafa það ekki svona á glámbekk svo enginn myndi taka það. Þessi vesalings kona, fárveik og uppdópuð af lyfjum vildi það endilega og þakkaði henni mikið fyrir að vilja fara með veskið í læstan skáp. Síðan þá hefur veskið ekki fundist. Þetta hefur greinilega ekki verið starfsmaður á ferð, og mér finnst hræðilegt hvað fólk hefur lítið hjarta, að stela af gamalli konu sem liggur á gjörgæslu!! Ég á bara ekki til orð.

En ég ætla bara að fara að ljúka þessu bloggi mínu og vonast til hins besta þótt útlitið sé ekki gott.
Elska þig amma mín:* :'/

 
Guðbjörg
vá þetta sem þú skrifaðir seinast um veskið er hræðinlegt!!! að fólki skuli detta þetta í hug :O !!!! og líka það að þetta geti átt sér stað á gjörgæslu.
en það er bara að vona það besta ;* þú getur alltaf hringt ef það er e-ð helga mín ;**
#1
25. nóvember 2007 klukkan 19:36
Antonía & JónaVið heimtum link:) og flott síða;)
#2
28. nóvember 2007 klukkan 15:02
Antonía & JónaHvað segir Helga mín á ekki að fara að bloggar?:-)
#3
09. desember 2007 klukkan 22:59

Skrifa athugasemd

Könnun

Hvaða ilmvatn er best?!