Prófin búúin!
Ég er loksins búin í prófum (kláraði þau reyndar 8. des). Var í 7 prófum og það gekk bara sæmilega held ég. Ég er meirað segja búin að fá einkun úr þrem þeirra. Fékk 8 í íþróttum, 6 í náttúrufræði 123 og 7 í þýsku :) Er búin að ná öllu so far. Er samt mjög forvitin að vita hvað ég fæ úr stærðfræði og íslensku. Hef ekki miklar áhyggjur af ensku og dönsku.
Svoo hætti ég að kenna á föstudaginn. Sjitt hvað ég kvíði fyrir! Það eru jólatónleikar á föstudaginn og ég er ýkt kvíðin fyrir hönd stelpnanna sem ég er að kenna! ég er á nálum án djóks! Það endar með að ég fer að skjálfa og froðufella, þær eru ekki nógu vel undirbúnar... hmm.. hverjum ætli það sé að kenna?! :( Ég er örugglega einn ömurlegasti kennari í heeeimi!
Een ég bíð bara eftir að föstudeginum ljúki (ÞAÐ verður spennufall dauðans) og þá ætla ég sko ekki að gera NEITT allt jólafríið! Ég ætla ekki að spila í neinni messu og ég ætla ekki að spila neinsstaðar úti með Charles eða neeeiiitt. Bara vera heima með fjölskyldunni og taka til og liggja í leti! Er búin að vera að bíða eftir því of lengi!
Hvernig væri að taka föstudaginn með trompi bara ?
-Helga Sjöfn.
Ég sakna þín ýkt mikið þetta verða skrítin jól án ykkar :/
knús og kossar
Jara
