Prófíll

  • Nafn: Helga Sjöfn Hrólfsdóttir
  • Staður: Fellabær
  • Atvinna: Fiðlukennari
  • Hjúskaparstaða: laus
  • Um mig: Ég elska þig :)

Auglýsing

Nýtt blogg fyrir Jöru:*

20. febrúar 2008 klukkan 23:48
Ég er rooosaleg leim bloggari! Ég var eiginlega komin á það stig að hætta bara með þessa síðu þar sem ég nenni ekki að gera neitt hérna :$
En hvað gerir maður ekki fyrir systur sína? :)

Það er samt ekkert að frétta af mér eiginlega. Nema bara að það er búið að vera brjálað að gera í skólanum í síðustu viku, þessi vika er öllu skárri því það eru opnir dagar í gangi:D Seinasti dagurinn því miiiður á morgun, og þá fer ég að horfa á teiknimyndir hjá Ronaldi :D ég ætlaði líka að fara í nudd á morgun en Vala kemst ekki með mér til að vera nuddfélagi svo ég fer bara snemma heim á morgun eftir teiknimyndirnar.
En það sem ég valdi mér að gera í gær var alveg fullt sko! Fór á fyrirlestur kl 11 í gær um stuttmyndagerð (eða hugmyndir að stuttmyndagerð og hvernig ætti að búa til stillur og e-ð svoleiðis) og ég skráði mig í að gera sýningu á cafe Valný! Er frekar spennt fyrir því:D Svo kl 13 fór ég í námsver með Völu og ætluðum að vera rosa duglegar að læra, en það eina sem við náðum að gera var að gera eitt uppeldisfræði verkefni og hjálpa Lindu og Nínu með Morfís ræðurnar þeirra, sem voru snilld btw:D haha! Svo kl 16 var badminton ooog það var svo gaman! Ég og Linda á móti Heiðdísi og Völu. Við spiluðum badminton sitjandi og hoppandi á öðrum fæti og guð má vita hvað! Ég hef aldrei skemmt mér jafn vel í badminton :)

Svo var það Morfís keppnin. Nemendur vs Kennarar og umræðuefnið var "eru austfirsk ungmenni á réttri leið í lífinu?" Og nemendur voru á móti og kennarar með því. Ræðurnar þeirra Lindu, Ástu og Haffa voru snilld:D ekkert smá mikið hlegið þarna, kennararnir voru líka ágætir... enda unnu þeir, tíkurnar ;) hehe.
Svo í dag fór ég á austfirsku ólympíuleikana á Nesk.. ME var í 2. sæti... við höfðum orðið í 1. sæti ef helvítis blakið hefði ekki verið með í þessu! Ég er ekki að segja að við sökkum e-ð mikið í blaki... nei heldur mega VA-ingar eiga það að þau eru viðbjóðslega góð í blaki, enda æfa þau það stíft!!! Annað en ME-ingar gera... Næsta ár verður ekkert helvítis blak:D haha.
Á morgun verður svo bara horft á teiknimyndir kl 10 á morgun og svo sækja Jón og svo fara í tónlistartíma og fara að sofa kl 8!!

Ég er búin að vera ein heima í 11 daga núna! Eða reyndar ekki alveg ein heldur er ég búin að vera að passa Jón Einar... sem er búið að vera soooldið þreytandi, það er rosalega mikið verk að sjá um 6 ára krakka, heimilisstörfin einsog þau leggja sig, helvítis námið og tónlistartímana og fleira sem fylgir því að eiga fullt af vinum og vera einn heima;)... mamma og pabbi koma á morgun frá Las Palmas og ég á pottþétt eftir að greeenja af létti að þurfa ekki að elda eða hugsa um allt húsið og Jón eein !
Samt er nú alveg búið að vera smá kammó að vera ein í húsinu án þeirra gömlu... en það var eiginlega bara gaman fyrstu 4-5 dagana ;)

Jæjaa Jara mín! Nú geturu skemmt þér að kommenta þetta fallega blogg þar sem ég efast um að einhver annar muni gera það ;) Sakna þín meeest!:*
ohh takk æðislega fyrir þetta frábæra blogg bara handa mér,:) er það ekki annars ?
En já þeð er meira en að segja það að hugsa um barn og heimili hehe en núna ættu mamma og pabbi að vera að stíga upp í flugvelina á leiðinni austur svo að þú getur andað léttar hehe.
En þú hefðir bara átt að biðja mig um að vera nudd félagi þinn ég hefði pottþétt komið, alltaf til í að láta þig nudda mig hehe þú ert með töfra hendur! En já ég ættla ekki að hafa þetta koment lengra, nánast orðið ritgerð hjá mér:)
En hafðu það ógeðslega gott sæta mín og ég elska þig líka mest :* :*
#1
21. febrúar 2008 klukkan 14:57
 
Jara
jæja skvísa það fer nú að vanta nýtt blogg hjá þér ha!!!! en skemtu þér ve á akureyri
lov jú :*
#2
11. apríl 2008 klukkan 21:23
 
Jara
jæja góða mín núna eru liðnir 4 mánuðir síðan að þú bloggaðir síuðast fyrir mig ha?? er ekki komið að nýju bloggi fyrir tækni heftu systur þína sem að kann ekki á þetta myspace kjaftæði ha?? meira að segji ég er búin að bloga og bæta við nýri undirsíðu á siðuni hans Heiðars. jæja BLOGGA SVO KONA. en aní veis lov jú sæta spæta
jara
#3
20. júní 2008 klukkan 19:33

Skrifa athugasemd

Könnun

Hvaða ilmvatn er best?!