Númer tvö!
[er að hlusta á; Ég vil - StebbiHD]
[skap; bara fínt:)]
Vegna mikillar eftirspurnar eftir nýju bloggi hef ég séð af mér og ákveðið að blogga... gjörðu svo vel Helgi;)
Ég veit nú samt ekkert hvað ég á að blogga um þar sem síðastliðnir dagar hafa verið frekar dauðir. Prófin eru aalveg að fara að skella á fólk alveg á milljón að læra undir þau *hóst*.
Seinasti "venjulegi" skóladagurinn var í dag!! :D Hann var nú samt ekkert venjulegur þar sem kennararnir héldu okkur allir í 20 mín max inní tíma og þrír tímar féllu niður. Bara nice dagur:) Fór síðan og tók tónfræðipróf eftir skólann og mér gekk bara betur en á horfðist! :O Ég vil þakka Benný fyrir það:*
Svo tók hann Helgi mig á rúntinn í dag.. ég er ekki frá því að þessi drengur hafi verið á einhverju sterku og náð að smita mig því við létum einsog FÍBBL allan tímann og öskruðum eins og ég veit ekki hvaað þegar við vorum að reyna að syngja!!! Það er gott að rifja upp barnæskuna öðru hverju;)
Svo var skellt sér í tónlistartímaa og það er stefnt á tónleikar bráðlega:)
Útaf óvæntri eftirspurn Rögnu Sverris um að koma með sér niðrí sjoppu ef ég ákveðið að taka mér hlé frá þessu ágæta bloggi sem hefur hér með drepið mann og annan og ætla að rölta með henni þangað.
Þar til seinna, bæbææ :;
Góð hugmynd?
Er góð hugmynd að koma aftur í bloggheiminn?
Imba er búin að vera að væla óþarflega mikið í mér að fá mér nú myspace síðu! En ég vil það ekki... veit ekki af hverju. Kannski er það rétt sem hann elskulegi vinur minn Jón V sagði mér.. að ég væri grunnhyggin og þröngsýn manneskja.?! spurning...
En í staðinn fyrir myspace síðu fékk ég mér bloggar.is síðu :I Ég vona bara að fólk verði duglegt að kommenta og svona - annars nenni ég ekki að vera með bloggsíðu.
En í gær fór ég á tónleika í sláturhúsinu! Það var stemmning! Fullt af hæfileikaríkum ME-ingum að syngja og spila! :D ég er ekki frá því að Fellbæingar hafi verið nánast í meirihluta af þeim sem komu fram :O
Svo eftir tónleikana fór ég bara heeiim því ég var að deyja úr verkjum;/ En Imba sagði mér að ég hefði ekki misst af neinu hvort eð er:; hehe!
JÓN VIÐAR ÞÚ SKULDAR MÉR MEIKDOLLU!!!
En ég ætla að láta þetta gott heita í bili og verið dugleg að kommenta!! :D
Kv. Helga Sjöfn
